Myndir frá opnun ferðasýningarinnar “Outside Looking In, Inside Looking Out”, í Tókýó í Japan 30. maí 2025. Sýningin var hluti af dagskrá menningarhátíðarinnar Taste of Iceland og er unnin í samstarfi við Íslandsstofu og íslensk sendiráð.
Sýningunni fylgdu úr hlaði myndlistarmaðurinn Fritz Hendrik IV, sýningarstjórinn Heiðar K. Rannversson og forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar, Auður Jörundsdóttir.
Sýningunni er ætlað að vekja athygli á íslenskum listamönnum sem hafa náð ákveðinni fótfestu í sinni listsköpun. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Arnar Ásgeirsson (f. 1982), Emma Heiðarsdóttir (f. 1990), Fritz Hendrik IV (f. 1993), Melanie Ubaldo (f. 1992), Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984), Hildigunnur Birgisdóttir (f.1980) og Una Björg Magnúsdóttir (f. 1990).
Uppsetningin í Tókýó markaði lok hringferðar sýningarinnar um heiminn, en hún hefur ferðast til New York, Amsterdam, Helsinki, Parísar og Óslóar.