Íslensku myndlistarverðlaunin 2018

20.12.2017
Íslensku myndlistarverðlaunin 2018 - merki

Myndlistarráði er sönn ánægja að kynna Íslensku myndlistarverðlaunin.

Verðlaunin verða í fyrsta skipti afhent í febrúar næstkomandi og opnað hefur verið fyrir tilnefningar. Það er Myndlistarráð sem stendur að verðlaununum sem hafa þann tilgang að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar á Íslandi. Verðlaununum er ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og styðja við myndsköpun þeirra.

Sendu inn tillögu að tilnefningu til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2017, opið er fyrir tillögur til 17. janúar 2018.

Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins.

Aðalverðlaun, 1 milljón króna, verða veitt íslenskum myndlistarmanni eða myndlistarmanni með búsetu á Íslandi sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu myndlistarári, 2017. Hvatningarverðlaun, 500 þúsund krónur, verða veitt ungum starfandi myndlistarmanni sem lokið hefur grunnnámi á síðastliðnum 5 árum og sýnt hefur opinberlega innan þess tíma.

Dómnefnd Myndlistarverðlauna Íslands er skipuð fulltrúum Listaháskóla Íslands, Listfræðafélagi Íslands, Myndlistarráði, safnstjóra íslenskra listasafna (Listasafn Íslands, Listasafnið á Akureyri, Listasafn Reykjavíkur, Gerðarsafn, Nýlistasafnið, Listasafn Árnesinga, Listasafn Reykjanesbæjar, Listasafn ASÍ) og Sambandi íslenskra myndlistarmanna.

  • Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir, myndlistarmaður (SÍM)
  • Sigrún Hrólfsdóttir, deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands
  • Magnús Gestsson, formaður Listfræðafélags Íslands
  • Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fulltrúi safnstjóra íslenskra safna
  • Margrét Kristín Sigurðardóttir, formaður Myndlistarráðs

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur