Íslensku myndlistarverðlaunin 2019

28.11.2018
Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 - merki

Opnað hefur verið fyrir tillögur að tilnefnginum til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2019.

Verðlaunin verða veitt í annað skipti í febrúar 2019 og hægt er að tilnefna til miðnættis 11. janúar. Myndlistarráð stendur að verðlaununum sem hafa þann tilgang að vekja athygli á því sem vel er gert á sviði myndlistar á Íslandi. Verðlaununum er ætlað að stuðla að kynningu á íslenskum myndlistarmönnum og styðja við myndsköpun þeirra.

Sendu inn tillögu hér til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2019

Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum: Myndlistarmaður ársins og Hvatningarverðlaun ársins.

Aðalverðlaun, 1 milljón króna, eru veitt íslenskum myndlistarmanni eða myndlistarmanni með búsetu á Íslandi sem þykir hafa skarað framúr með nýlegum verkum og sýningu á Íslandi á síðastliðnu myndlistarári, 2018. Hvatningarverðlaun, 500 þúsund krónur, verða veitt ungum starfandi myndlistarmanni sem lokið hefur námi á síðastliðnum 5 árum og sýnt hefur opinberlega innan þess tíma.

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur