Það er gaman og gefandi að skoða myndlist og þetta sumarið er af nógu að taka um allt land. Það er viðeigandi að hefja hringferðina um landið á sjálfan Þjóðhátíðardaginn en þann 17. júní verða tvær sýningar opnaðar á Ísafirði. Í nýuppgerðu húsnæði Listasafni Ísafjarðar, verður opnuð þátttökusýning myndlistarkonunnar Elínar Hansdóttur, Book Space. Sýning hefur ferðast víða um heim. Samtímis er þess minnst að 100 ár eru frá vígslu Gamla sjúkrahússins, Safnahússins, sem nú hýsir listasafnið og bókasafnið.

Elín Hansdóttir, Book Space, 2005.
Í Gallerí Úthverfu verður opnuð myndlistarsýning tveggja finnskra myndlistarkvenna, þeirra Kariliina Hellberg og Josefina Nelimarkka, Parallel Dimensions. Sýningin er hluti tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið. Stór hluti dagskrár hátíðarinnar er finnskur í ár og er myndlistarsýningin hluti af því.

Josefina Nelimarkka_Hydrobeing
Ef við færum okkur sunnar á Vestfjarðakjálkann, í Selárdal, komumst við í færi við Listasafn Samúels Jónssonar, þar sem listaverk Samúels eru til sýnis bæði inni og úti.
Í Dalabyggð er sýningarstaðurinn Nýp oft með áhugaverðar sýningar og ekki má gleyma Vatnasafni Roni Horn í Stykkishólmi.
Næst gæti leiðin legið til Djúpavíkur, þar sem sýningin Himnadansarar stendur yfir í gömlu síldarverksmiðjunni. Þar sýna íslenskir og alþjóðlegir listamenn og nota vísindi og goðsagnir til þess að vísa veginn í gegnum gömlu síldarverksmiðjuna í Djúpavík, vekja upp fyrirbæri sem sjást annars ekki að sumri til – og sýna hið ósnertanlega sem tengir Jörð og Himinn.
Aðalheiður Eysteinsdóttir starfrækir galleríið Kompuna í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Nú stendur yfir sýning Vilhjálms Yngva Hjálmarssonar, Það sem teygir sig í báðar áttir, og dagana 11.-13. Júlí fer þar fram listahátíðin Frjó í tilefni af 10 ára menningarstarfi hússins.

Það sem teygir sig í báðar áttir, Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
Í Listasafninu á Akureyri stendur yfir samsýning norðlenskra listamanna, sem ætlað er að gefa innsýn inn í fjölbreytta flóru myndlistar á norðurlandi. Einnig má nefna Þóru Sigurðardóttur, Tími – rými – efni og sýningu Heimis Hlöðverssonar, Samlífi.
Á Akureyri og í nágrenni eru einnig sýningarstaðir eins og Deiglan, Flóra menningarhús, Kaktus, Mjólkurbúðin og Verksmiðjan á Hjalteyri. Vert er að gefa sérstaklega gaum að sýningu Safnasafnsins, sem í ár heldur upp á 30 ára afmæli með stórri samsýningu.

Hallir ímyndanna, Ísleifur Sesselíus Konráðsson
Austur á landinu eru sýningarstaðir á Borgarfirði Eystri, Egilsstöðum og á Seyðisfirði. Þar í listamiðstöðinni Skaftfelli er ný Kjarvalssýning að líta dagsins ljós, Kjarval á Austurlandi – þar sem sjá má landslagsmyndir Kjarvals frá landshlutanum.
Á Djúpavogi er starfrækt samtímalistasafnið Ars Longa og þar verður opnuð stór samsýning samtímalistamanna, Í lággrórðinum, 28. júní. Þar sýna 13 íslenskir og alþjóðlegir listamenn í sumar.
Á Höfn í Hornafirði stendur Svavarssafn og þar eru fjölbreyttar sýningar árið um kring.

Kjarval á Austurlandi
Á Suðurlandi er Íslenski bærinn í nágrenni við Selfoss, þangað er gaman að koma og skoða allt sem tengist íslenska torfbænum og grænni byggingalist. Í Hveragerði er Listasafn Árnesinga þar sem standa yfir tvær sýningar í sumar, Meðal guða og manna: Íslenskir listamenn í Varanasi og einnig sýningin Bær.