Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 14. febrúar 2022. Um er að ræða
fyrri úthlutun úr sjóðnum á árinu en úthlutað verður í marsmánuði.
Veittir verða styrkir í þrem flokkum og eru þeir eftirfarandi:
verkefna sem síðar geta sótt um styrk til framkvæmdar.
fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
styrkir eru veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita
um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra opinna verkefna sem ekki
falla undir aðra liði.
Umsóknarformið
Umsóknarformið má finna í rafrænni eyðublaðagátt Origo, https://myndlistarsjodur.eydublod.is/Forms en sama kerfi er í notkun hjá nokkrum
opinberum stofnunum, meðal annars Þjóðskrá og safnasjóði.
Þar finnur þú rétt umsóknarform og skráir þig inn með Íslykli eða rafrænum
skilríkjum.
Upplýsingar um Íslykil eða rafræn skilríki má finna á vefsíðu Ísland.is.
Umsóknir skulu vera á íslensku sé þess kostur en annars má finna umsóknarform
á ensku.
Smelltu hér ef þú vilt skoða vistaðar eða sendar umsóknir / Mínar síður.
Skráðu þig inn með sama Íslykli eða rafrænu skilríkjum og þegar þú vistaðir /sendir
umsóknina.
Athugið að afrit af umsókn eða skilum eru send á það netfang sem skráð er
í umsóknina.
Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is