Myndlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum um árslanga vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien, Berlín, frá íslensku myndlistarfólki og myndlistarfólki sem hefur sterka tengingu við íslenskt listalíf. Dvalartímabil er frá 1. maí 2026 – 15. apríl 2027.
Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2025, kl. 23:59.
Künstlerhaus Bethanien var stofnað árið 1974, og er ein rótgrónasta og virtasta stofnun Þýskalands á þessu sviði. Að jafnaði starfa um 25 listamenn víðsvegar að úr heiminum við miðstöðina, sem býður upp á alþjóðlegt tengslanet og samstarf innan samtímamyndlistar.
Dvölin veitir listamönnum sem þar dvelja aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti; sýningarstjórum, safnafólki, blaðamönnum og öðrum sem starfa innan geirans. Auk þess heldur stofnunin utan um sýningarhald, útgáfu og ýmsa viðburði fyrir listamennina sem þar dvelja. Á meðan vinnustofudvöl stendur heldur hver listamaður einkasýningu á vegum Künstlerhaus Bethanien.
Boðið er upp á einkavinnustofu sem er 40 m² að stærð og fullan aðgang að verkstæðum og bókasafni. Listamaður hefur kost á því að búa á vinnustofunni óski hann þess, en þar er til staðar eldhúskrókur og rúm.
Vinnustofudvölin er fjármögnuð með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og Viljanda minningarsjóði.
Lögð er áhersla á að bjóða listamönnum til dvalarinnar sem hafa verið starfandi í þónokkurn tíma og hafa áhuga á því að leita tækifæra utan landsteinanna. Gert er ráð fyrir að viðkomandi listamenn hafi sýnt á söfnum og viðurkenndum sýningarstöðum hérlendis og erlendis. Innifalið í styrknum eru dvalargjöld, en handhafi styrksins þarf að dekka ferðakostnað og uppihald.
Forval á umsóknum er í höndum fagráðs Myndlistarmiðstöðvar, en lokaval á myndlistarmanneskju er í höndum Künstlerhaus Bethanien.
Sækja um
Umsóknin og umsóknargögn þurfa að vera á ensku.
Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi gögn:
Kynningarbréf og stutt greinargerð á því hvernig listamaður hyggst nýta sér dvölina, markmið og væntingar.
Ferilskrá
Ferilmappa
Meðmælabréf, greinar og fjölmiðlaumfjöllun, valfrjáls.