Book Space
Elín Hansdóttir

Book Space er þátttökulistaverk eftir Elínu Hansdóttur sem hefur ferðast milli almenningsbókasafna víðs vegar um Evrópu í tvo áratugi, eða frá árinu 2005. Kjarna verksins mynda 2.000 auðar bækur sem hafa verið til útláns á opinberum bókasöfnum — bækur sem bjóða gestum ekki upp á að lesa, heldur að skrifa, teikna eða leggja til hugmyndir sínar fram á hvaða hátt sem þeir kjósa.
Með því að setja þessar óskrifuðu bækur í daglega umferð bókasafna umbreytir listamaðurinn hefðbundnum rýmum passífrar þekkingarsöfnunar í virkar og síbreytilegar arkívur persónulegrar tjáningar og íhugunar. Gestir eru hvattir til að skrá hugsanir sínar, sögur, skissur eða texta á síður bókanna og umbreyta þeim þannig í marglaga, sameiginlegt handrit sem mótast yfir langan tíma.
Book Space ögrar hefðbundnum hugmyndum um höfundarétt, vald og varanleika í bæði bókmenntum og myndlist. Verkið þurrkar út mörkin milli lesanda og höfundar, áhorfanda og þátttakanda, en leggur áherslu á hæga virkni einstaklingsbundinna framlaga innan sameiginlegra kerfa þekkingar. Áþreifanleg reynsla af því að handfjatla pappír — finna áferð hans, þyngd og efniskennd — skapar sterka andstæðu við óáþreifanleika stafrænna miðla samtímans. Á tímum þar sem skjárinn ræður ríkjum, bjóða þessar bækur upp á skynræna endurkomu hægari og yfirvegaðri samskiptamáta.
Þessi viðleitni til víkka út hugtakið um höfundinn og hið sameiginlega minni okkar allra endurspeglar í víðari skilningi listræna nálgun Elínar Hansdóttur, því verk hennar lúta oft að skynjun, samspili og endurskoðun á stofnunum og rýmislegum mörkum. Um leið og hver og ein bók fyllist af ólíkum röddum eða tjáningu, verður Book Space að valddreifðu, lifandi listaverki — í senn persónulegt og lýðræðislegt, ljóðrænt og óútreiknanlegt.
Verkið hefur verið sett upp í almenningsbókasöfnum á Íslandi, í Þýskalandi, á Spáni og í Belgíu — auk bókasafna innan fangelsis og endurhæfingarmiðstöðvar — þar sem það endurskilgreinir hlutverk bókasafna í menningu samtímans. Í stað þess að vera fyrst og fremst varðveislustaður fyrirframgefins efnis, verður Book Space safnið að virku rými samskipta, sköpunar og viðveru, þar sem merking mótast í sífellu af þeim sem þar staldra við.
Listamaður: Elín Hansdóttir