Brennuöld

Anton Logi Ólafsson

Anton Logi Ólafsson - Brennuöld

Brennuöld er sería listaverka unnin út frá galdrafári 17. aldar á Íslandi. Í verkunum eru lausar sagnfræðilegar tengingar í bland við hráar tilfinningar. Tilurð seríunnar var ekki sagnfræðilegs eðlis heldur spratt hún upp úr tilfinningum listamannsins: sorg og réttlátri reiði.

Ég hef persónulega tengingu við Brennuöld. Amma mín, Ólöf Marín Einarsdóttir heitin, sagði okkur söguna af einu mæðginum Íslandssögunnar sem brennd voru saman á báli fyrir galdur, og að við værum skyldmenni þessara meintu norna. Hún lést í janúar árið 2020. Árið 2021 tóku ég og 125 aðrir listamenn þátt í samsýningunni Nr. 4 Umhverfing. Listamönnum var boðið að taka þátt út frá ættartengslum sínum við Vestfirði og mér var strax hugsað til ömmu minnar og sögunnar sem hún sagði okkur. Eftir rannsókn í gegnum Wikipedia og Íslendingabók fékk ég það staðfest að mæðginin Þuríður Ólafsdóttir og Jón Helgason - kennd við Selárdalsmálin - voru brennd á báli fyrir galdur, og að þau voru ættfólk mitt. Verkin mín eru helguð minningu Ólafar ömmu minnar, Þuríði, Jóni og allra fórnarlamba trúarofstækja.

Sýningin stendur yfir 1. - 20. desember, 2023.

Listamaður: Anton Logi Ólafsson

Dagsetning:

01.12.2023 – 20.12.2023

Staðsetning:

SÍM Gallery

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýning

Opnunartímar:

Mán – sun: 12:00 – 16:00

Fimmtudagurinn langi

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur