Crawl back in

Reija Meriläinen

Reija Meriläinen: Crawl back in

SÍM Residency, í samstarfi við Finnska menningarsjóðinn, kynnir Crawl back in, einkasýningu eftir Reija Meriläinen, gestalistamann, í SÍM salnum.

Crawl back in dvelur í mjúkri umbreytingu – rými á milli forma, þar sem löngun, vanlíðan og mýkt renna saman. Stafrænni nánd bregður fyrir og kemur upp á yfirborðið ásamt aðdáunarþráhyggju, áður en þau hverfa aftur. Haminum hefur verið fleygt. Eitthvað óstöðugt situr eftir. Það er alltaf aðeins of mikið.

Sýningin stendur til 25. maí og verður opin virka daga frá 12:00-17:00 og laugardaga frá 13:00-17:00.

Reija Meriläinen er listamaður með aðsetur í Helsinki sem vinnur með vídeóverk, skúlptúra og innsetningar þar sem stafrænir og líkamlegir þættir mætast. Í verkum háns tengjast félagsleg spenna og völd líkamlegri og efnislegri skynjun. Þrátt fyrir mjúka sjónræna framsetningu gefa verkin oft vísbendingar um valdatengsl og ofbeldi. Verk háns tvinna saman sjálfsævisögulega frásögn við ýkjur og fantasíu og fá þannig áhorfandann til að endurmeta hvað telst eðlilegt eða þægilegt. Í verkum sínum leikur hán sér gjarnan með þversagnir þess sem er bæði aðlaðandi og fráhrindandi – hvort sem er í útliti eða innihaldi. Eitthvað sem getur verið bæði verið umhyggjusamt og ofbeldisfullt á sama tíma – mjúkt og hart. Áþreifanleiki, verulegur eða hermdur, er ávallt til staðar. Hán vinnur gjarnan með textíl og mjúk efni en verkin endurspegla bæði stafræna miðla sem hán neytir og netmenningu sem hán tilheyrir. Reija hefur brennandi áhuga á aðdáendalist (fan art).

Listamaður: Reija Meriläinen

Sýningarstjóri: Ástríður Jónsdóttir

Dagsetning:

14.05.2025 – 25.05.2025

Staðsetning:

SÍM Gallery

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýning

Opnunartímar:

Mán – sun: 12:00 – 16:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5