Himnadansarar

Samsýning / Group Exhibition

Himnadansarar

The Factory 2025: Himnadansarar kannar norðurljósin í gegnum listaverk sem eru jafn himnesk og hverful og norðurljósin sjálf. Tíu listamenn nota vísindi og goðsagnir til þess að vísa veginn í gegnum gömlu síldarverksmiðjuna í Djúpavík, og vekja upp fyrirbæri sem sést annars ekki að sumri til – og sýna hið ósnertanlega sem tengir Jörð og Himinn.

“Aurora“ var rómversk gyðja dögunar og “boreas“ er gríska orðið yfir norðanvind. Himneskir litastormar hafa haldið mönnum í álagafjötrum í ótalmörg ár. Þau draga líkama, huga og sál inn í þoku myrkurs og ljóss — og kallað fram dulspeki, heilun, gleði, glundroða og ótta. Nú til dags laðar þetta náttúruundur að ferðamenn. Fólk ferðast um heiminn á háhraða til þess að sjá norðurljósin, sem eru orðin að upplifun og gjaldmiðli á samfélagsmiðlum. Þannig hefur orðræðan í kringum norðurljósin gjörbreyst með tímanum og fólkinu, og margur sannleikurinn af þeim sprottinn. Undur hefur þó alltaf sama aðdráttaraflið og tengir mannfólkið við eitthvað meira-en-mennskt. Listamennirnir á bak Himnadansarar segja þeirra eigin persónulegu sögur og túlkanir á þessu kynlega fyrirbæri.

Þannig býðst þér uppgjöf. Þú getur valið á milli þess að hverfa aftur inn í heim þekkingarleysis, eða dvelja við vísindalegar skýringar á alheiminum. Ljós og myrkur eru þó alltaf í húfi, og marka sér leið í gegnum sýninguna Himnadansarar, dansandi fjölda dansspora.

Listamenn: Anna Ólöf Jansdóttir (IS), Björt Sigfinnsdóttir (IS), Edda Karólína Ævarsdóttir (IS), Kathie Halfin (UKR/IL/US), Kathryn Cellerini Moore (US), Lyse Fournier (FR), Signe Emdal and Kristian Emdal (DK), Sævar Helgi Bragason (IS), Tinna Ottessen (IS). Sýningarstjóri: Emilie Dalum

Styrktar- og samstarfsaðilar: Hótel Djúpavík, Uppbyggingarsjóður Vestfjarðar, Listaháskóli
Íslands, Ljósmyndaskólinn, Náttúrubarnahátíð á Ströndum. Haldið af Hótel Djúpavík.

Listamaður: Samsýning / Group Exhibition

Dagsetning:

24.05.2025 – 12.09.2025

Staðsetning:

Verksmiðjan á Djúpavík

Djúpuvík, 524 Árneshreppur, Iceland

Merki:

VesturlandSýningEnginn aðgangseyrir

Opnunartímar:

24 maí - 12. sept. Daglega: 10-18

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5