Leiðnivír

Hilda de Paulo, Tales Frey

Sýningin samanstendur af úrvali verka eftir brasilísku listamennina Hilda de Paulo (f. 1987) og Tales Frey (f. 1982), sem hafa unnið saman í meira en fimmtán ár. Listamennirnir hafa komið víða við í margvíslegum listformum og eru verk þeirra því samtal á milli fjölmargra sviða, s.s. sjónlista, sviðslista og gjörningalistar. Þau skilgreina sig sem eftirtektarvert dæmi um verkefni á jaðrinum, þar sem kannaður er krafturinn í því sem er samhliða. Með sýningunni hafa þau áhuga á að skilgreina báðar hliðar, finna snertifletina og samrunann; árangurinn af langri samvinnu og samlífi þessara tveggja listamanna. Hilda tekur virkan þátt í gjörningum Tales, sem á móti er viðriðinn mörg af verkum Hilda. Hvað yfirfærist frá einum til annars? Hvar liggja mörkin á milli lífsins og verkanna? Á hverju er sambandið byggt? Í þessari samvinnu eru verk listamannanna sett fram sem pólitík langana, með það að markmiði að skapa aðrar útgáfur af tilverunni.  Báðir listamenn hlutu menntun sína í háskólum í Portúgal, Hilda í listasögu og Tales í leikhúsfræðum. 

Listamenn: Hilda de Paulo, Tales Frey

Sýningarstjóri: Pollyana Quintella

Dagsetning:

05.05.2023 – 14.01.2024

Staðsetning:

Listasafnið á Akureyri

Kaupvangsstræti 8, 600 Akureyri, Iceland

Merki:

NorðurlandSýning

Opnunartímar:

júní-ágúst 10 — 17 alla daga

september-maí

12 — 17 alla daga

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur