Ljáðu eyra

Elsa Jónsdóttir

Ljáðu eyra

Hún þróar tákn sem hún umbreytir til þess að kalla fram nýja merkingu tengda viðfangsefnum sínum. Á einn bóginn getur formfræði hins skrifaða orðið að sérstæðu myndrænu tungumáli. Á þessari sýningu er áherslan hins vegar á það hvernig hljóð og hlustun verða að innsetningu sem höfðar til skilningarvitanna.

Skúlptúrar, hljóðmynd og innsetning ljósa í D-sal í Hafnarhúsinu bjóða upp á margþættan lestur. Við fyrstu sýn má greina gamansemi; form, hljóð og dularfull lýsing mynda líflegt samspil. Við nánari athugun, þegar við leyfum okkur að leggja raunverulega við hlustir, vakna róttækari fagurfræðilegar spurningar: Getur mannleg skynjun verið tjáð í gegnum form? Er athygli virkt ferli sköpunar? Hugurinn blómstrar þegar hlustun verður sjón. Hlustun er athygli. Að hlusta er skilningur. Að hlusta er ást.

Í verkum sínum leggur Elsa stund á formfræði tungumálsins, letur, orð og tilvísanir. Hún rannsakar lestur í sínum víðasta skilningi og færir hugrenningar sínar í tákn, form og stafi. Á síðustu árum hefur hún fært sig úr tvívíðum verkum í almanna­rými yfir í þrívíðan skúlptúr. Elsa hefur lengi starfað innan myndlista­tvíeykisins Krot & Krass, en hafa þau unnið ótal veggverk bæði hér heima og erlendis. Elsa hefur tekið þátt í rekstri fjölmargra listamannarýma í Reykjavíkurborg og þar má sérstaklega nefna Fúsk í Gufunesi.

Listamaður: Elsa Jónsdóttir

Sýningarstjóri: Zsóka Leposa

Dagsetning:

07.08.2025 – 21.09.2025

Staðsetning:

Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Opið alla daga: 10:00 – 17:00

Fimmtudagar opið til kl. 22:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5