Málþing: Steina og Woody Vasulka – Varðveisla arfleifðar
Steina Vasulka, Woody Vasulka

Vasulka Foundation og BERG Contemporary bjóða til málþings þar sem varpað verður ljósi á brautryðjandi starf og áhrifamikil verk Steinu og Woody Vasulka, ásamt varðveislu stafrænna og tímatengdra miðla, í samhengi við lykilverk Woodys, The Brotherhood (1990-1998), sem nú er sýnt í BERG Contemporary.
Á málþinginu koma saman virtir fagaðilar úr heimi samtímalista og forvörslu margmiðla og deila þekkingu sinni og innsýn. Kafað verður í verk Steinu og Woody Vasulka og fjallað um varanleg áhrif þeirra á samtímalistir og tækni, auk þess sem rætt verður um þær áskoranir og tækifæri sem felast í varðveislu og túlkun tímatengdra verka, með sérstaka áherslu á verkið The Brotherhood.
Fyrirlesarar og þáttakendur:
Patrícia Falcão, forvörður tímatengdra miðla, aðföng og varðveisla, Tate, UK
Joey Heinen, stafrænn varðveislustjóri, LACMA – Los Angeles County Museum of Art, US
Ingibjörg Jónsdóttir, listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri BERG Contemporary, IS
Christopher King, aðstoðarforvörður tímatengdra miðla, aðföng, Tate, UK
George Morris forvörður tímatengdra miðla, sýningadeild, Tate, UK
Margit Rosen, listfræðingur og sýningarstjóri, ZKM – International Center for Art and Media, Karlsruhe, DE
Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og fyrrum safnstjóri Listasafns Íslands, IS
Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga og framkvæmdastjóri Vasulka Foundation, IS
Málþinginu er stýrt af Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, rithöfundi og menningarrýni
Dagskrá:
1:00 p.m.: Sýning á Cantaloup (1980) – innsýn í verk Vasulka.
1:30 p.m.: Opnunarræða Ingibjargar Jónsdóttur (BERG Contemporary) og Kristínar Scheving (Listasafn Árnesinga, Vasulka Foundation).
1:45 p.m.: Vasulka, þá og nú – Kristín Scheving varpar ljósi á aðferðafræði Vasulka hjónanna, erindið inniheldur samtal við Steinu Vasulka.
2:10 p.m.: Endurgerð The Brotherhood – Ingibjörg Jónsdóttir.
2:30 p.m.: Þrjú framsöguerindi frá forvörðum tímatengdra miðla Tate safnsins:
Samhengi forvörslu og áhrif breytinga – Patrícia Falcão,
Rafmagnaðir draumar: Það sem heldur fyrir mér vöku að næturlagi – George Morris,
Ófyrirséðar aðstæður, forvarsla og stjórnkerfi – Christopher King.
3:15 p.m.: Kaffipása.
3:45 p.m.: Allt innan fjölskyldunnar: Genasamsetning The Brotherhood – Joey Heinen (LACMA).
4:05 p.m.: Saga á meðal vina: Steina, Woody Vasulka og Peter Weibel – Margit Rosen (ZKM).
4:25 p.m.: Palllborðsumræður með öllum fyrirlesurum auk Halldórs Björns Runólfssonar.
5:00 p.m.: BERG Contemporary býður gestum á sýninguna The Brotherhood (1990-1998) og til léttra veiga, sem og samtals við Robert O'Kane, sérfræðings sem sá um tæknilega útfærslu á uppsetningu verksins.
Aðgangur er ókeypis, en bóka þarf miða hér:
https://www.eventbrite.dk/e/symposium-the-vasulkas-tickets-1341309676349Málþingið fer fram á ensku.
Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við:
gallery@bergcontemporary.is
Listamenn: Steina Vasulka, Woody Vasulka