Umbrot
Samsýning / Group Exhibition

Með fjölbreyttri nálgun á efnismeðferð og myndmáli hefja sex listakonur samtal sín á milli og eða við áhorfandann. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt, sum brakandi fersk, önnur eiga sér lengri aðdraganda eða eru í umbreytingarferli.
Umbrot vísar til hreyfingar, þess augnabliks þegar eitthvað breytist, molnar, brestur eða tekur á sig nýja mynd. Það er hvorki upphaf né endir, heldur ástand í þróun.
Sýnendur eru:
Anna Snædís Sigmarsdóttir
Elísabet Stefánsdóttir
Elva Hreiðarsdóttir
Gunnhildur Ólafsdóttir
Soffía Sæmundsdóttir
Þórdís Elín Jóelsdóttir
Þær hafa allar langan feril að baki og hafa starfað saman innan félagsins Íslensk grafík.
Listamaður: Samsýning / Group Exhibition