Úr fullkomnu samhengi
Samsýning / Group Exhibition
.png-2000x1125.png&w=2048&q=80)
Verkefnið "Úr fullkomnu samhengi" sem varð til úr samstarfi milli sýningarrýmisins
Dazibao í Montreal og Verksmiðjunnar á Hjalteyri, leikur að greinilegum
ósamrýmanleika sem leyfir sér ákveðið sundurleysi til að kanna nýjar leiðir til
samstarfs og sýningargerðar. Verkefnið byggir á tengslum okkar við náttúruna og
hlutverk hennar í menningunni en það er eins og skipulag eða drög að fundi milli
borgar og óbyggðra víðerna ; myndgerða sem byggja á raunveruleikanum og öðrum
aðferðum sem mótast alfarið í stafrænu formi. Einnig á krossgötum, jafnvel árekstri,
milli viðkvæmrar náttúru í hættu og upphafinnar náttúru. Samstarfið gefur af sér tvær
sýningar, eina í Dazibao, með verkum eftir Gústav Geir Bollason og Þorbjörgu
Jónsdóttur og aðra í Verksmiðjunni, með verkum Julie Tremble og tvíeykisins
Philippe-Aubert Gauthier og Tanya St-Pierre.
Með því að líta stundum inn, utan frá og stundum út, innan frá, undirstrikar sýningi
“Out of Perfect Context” hvernig staðir og manngert umhverfi hafa áhrif á skynjun
okkar og með hvaða hætti við erum hluti af lífheiminum - eða ekki.
Á þessari sýningu í Verksmiðjunni, með verkum þeirra Julie Tremble og tvíeykisins
Philippe-Aubert Gauthier og Tanya St-Pierre, mun umhverfi kvikmyndalegs
raunsæis, skapað úr safni mynda sem eru að öllu leyti stafrænt framleiddar eða
meðhöndlaðar, vísvitandi mynda núning við íslenskt dreifbýlislandslag og
tilkomumiklar byggingar staðarins. Í óreiðukenndu samtali milli veruleika og
stafrænnar fantasíu stilla ofur-raunsæislegar myndir Julie Tremble saman stórkostlegu
útsýni sem er rammað inn af opum á byggingunni, á meðan vandlega útfærð
heimilisrými Gauthier og St-Pierre reyna að greypa sig inn í iðnaðarsögu og laga sig
að hrjúfleika sama staðar. Í þessu gagnkvæma samspili áhrifa setur gljúpleiki mynda,
staða og efniskennd þess sem við sjáum augntillitið á eins konar lóðréttan ás tíma þar
sem uppsöfnun skammtíma áhrifa verkar á skynjun okkar á heiminum og
framsetningum hans. Slík skynjun er einnig mótuð og stundum brengluð af
eftirtektarverðri nærveru hljóðs.
Listamenn: Julie Tremble, Philippe-Aubert Gauthier og Tanya Saint-Pierre
Sýningarstjóri: France Choinière
Listamaður: Samsýning / Group Exhibition