Æviskeiðar
Heimir Snær Sveinsson

Hvernig skömmtum við orku yfir hvern dag? Yfir hverja ævi?
Hvaða mynd tekur þín orka? Finnurðu fyrir henni í brjósti þér? Í maganum? Kemur hún út þegar þú andar?
Skeiðar geta verið ákveðin birtingarmynd orku.
Þær geta innihaldið eitthvað sem við gætum innbyrt og er notuð sem táknmynd orku í daglegum athöfnum (e. Spoon theory). Skeiðar eru mælieining á fleiri en einn hátt. Þær geta líka táknað stað og stund, tímaskeið getur spannað annað hvort eilífðina eða eina mannsævi.
Með þessum verkum vil ég nálgast eilífðina í hversdagsleikanum, að nota skeiðina sem tól til að
fanga orku sem er bæði nálægt en fjarri okkur.
Heimir Snær er starfandi myndlistarmaður með BA Hons í myndlist frá University of Cumbria og Mastersgráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Heimir hóf nám sitt í málaradeild MÍR árið 2021 og hefur áður unnið í leikmyndadeild fyrir sjónvarp og kvikmyndir.
Áhersla Heimis þessa stundina eru listaverk sem tengjast sólargangi, skugganum og orkunni sem býr þar að innan. Á sýningunni verða sýnd verk sem miðla hugmyndum um tengingu undirmeðvitundar og umhverfisins, gegnum þessi náttúrulegu fyrirbrygði.
Sýningaropnun verður fimmtudaginn 12. júní frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!
Aðrir opnunartímar:
Föstudagur 13. júní 13:00 - 18:00
Laugardagur 14. júní 13:00 - 15:00
Sunnudagur 15. júní 14:00 - 17:00
Þriðjudagur 17.júní 13:00 - 17:00
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar.
Listamaður: Heimir Snær Sveinsson
Sýningarstjóri: Elvar Gunnarsson