Fyrir handan liti og form
Kristján Steingrímur Jónsson

Hvað er fyrir handan liti og form? Með þessari spurningu kinkar Kristján Steingrímur kolli til meistara hugmyndalistarinnar, Roberts Smithsons, en hann lagði grunn að ákveðinni tilfærslu sem beindi sjónum að hughrifum staðfræði innan samtímalista. Þegar Smithson fyllti kassa af grjóti og möl, sem hann hafði safnað á útvöldum stöðum, og flutti þá inn í galleríið, þá nefndi hann verkin andstaði eða non-sites. Kristján Steingrímur hefur þróað slíka huglæga kortlagningu á jarðvegi á mjög persónulegan hátt í málverkum sem byggja á staðbundnum rannsóknum, sýnatöku og tilfærslu á jarðvegi. Í stað þess að vinna með landakort eða loftmyndir eins og Smithson gerði í framsetningu á hugmyndum sínum um stað og andstað, þá notar Kristján staðarheitin, sýnin, og litina sem hann framkallar úr jarðveginum til að skapa ný rými sem virkja ímyndunarafl áhorfandans. Slík yfirfærsla eða leikur á milli ólíkra merkingarrýma er eitt helsta einkenni hugmynda-listarinnar. Hér umbreytist jarðvegurinn í lit sem endurspeglar ákveðinn listveruleika á meðan hinn upprunalegur staður með öllum sínum sjónrænu, menningarlegu og jarðfræðilegu tilvísunum tilheyrir öðrum heimum sem lifa sjálfstætt utan listarinnar.
Rannsóknir Kristjáns snúast hvorki um ferðalög, jarðfræði, né efnafræði—en hugsanlega mætti líta á litaverkin sem einskonar innanhúss-jarðverk. Þau benda á hið augljósa að jarðvegssýni frá Heklu blandað akrýl á striga er hvorki mynd af Heklu né vísindalegt sýnishorn. Hins vegar eru skilin á milli hins sjónræna og hins staðbundna landslags rofin og smíðuð ný tengsl á milli efna, lita og tungumáls. Á milli hins raunverulega staðar, segjum Stálfjallsnámu á Barðaströnd, og litaverksins sem ber þetta heiti er lagt upp í skáldskaparferð þvert á tíma og rúm. Því Kristján staldrar oft við frásögnina í verkum sínum. Hann bendir á hið mannlega sem gefur stöðunum tilfinningalegt inntak, jafnvel sögulega merkingu, sýnir mennskuna sem býr að baki lita og forma.
Hér í stóra salnum í BERG Contemporary sýnir Kristján Steingrímur ný málverk á striga og pappír sem eiga það sameiginlegt að þau eru öll máluð með litadufti sem hann hefur unnið úr íslenskum jarðvegi. Að auki má má finna eitt verk samsett úr 55 litaprufum á pappír sem mynda raðir undir gleri (100x165 cm). Um er að ræða vinnuplögg, sýnishorn af litum sem allir tengjast ákveðnum stöðum á landinu. Í minni salnum má sjá sýnishorn eldri verka.
Bók Kristjáns Steingríms Fyrir handan liti og form kemur út í tilefni sýningarinnar. Hún hefur að geyma yfirlit yfir feril Kristjáns, frásagnir og ýmsar hugleiðingar listamannsins, auk fjölda litmynda af verkunum sjálfum og rannsóknarslóðum þeirra. Þá skrifa Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur og Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur um myndlist Kristjáns Steingríms í fræðilegu ljósi. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.
Æsa Sigurjónsdóttir
Listamaður: Kristján Steingrímur Jónsson