Í gegnum súrt og sætt

Dýrfinna Benita Basalan, Melanie Ubaldo

Í gegnum súrt og sætt

Við dvöldum í brennandi húsum, nærðum eldinn sem brenndi okkur. 

Við töldum þjáninguna gjald ástarinnar. 

Við spiluðum út þeim spilum er við höfðum á hendi. 

Við elskuðum, gáfum annað tækifæri, og svo annað og annað og annað, svo töpuðum við. 

Þetta er útför sameiginlegs sársauka okkar, og saman erum við upprisnar. 

Hinum megin

Við sjáum greinilega það sem eitt sinn blindaði okkur, við erum heppnar að hafa hver aðra. 

Við vorum aldrei raunverulega einar. 

„Að elska er að brenna, að loga, líkt og Júlía, Gunnvör eða Eloise“ (Aðgát og örlyndi, leikstj. Ang Lee, 1995). En enginn lifir eldinn af. Að minnsta kosti ekki einsamall.

Í gegnum súrt og sætt fjallar um ást, brostin hjörtu og sorg. Að elska er bæði blíðlegt og grimmilegt, engin ást sama hve grimm er til einskis. Sýningin er vettvangur berskjöldunar og nándar og hvetur gesti til að horfast í augu við hluta mannlegrar reynslu sem þykir óþægileg. Hún samanstendur af rituðum játningum, teikningum, vatnslitaverkum og innsetningum. Verkin vísa með beinum hætti og í gegnum myndlíkingar í það hvernig minningar blikna og sambönd slitna, þau leiða okkur um könnun á nánd og ástarsorg. Minnið er hverfult og tök þess á raunveruleikanum er í besta falli brotakennt, daufar svipmyndir af því sem við höfum séð, heyrt, upplifað; þar sem túlkun er oft tæmandi af því sem er túlkað. Hvert endurlit brýtur niður hinn upprunalega kjarna þar til allt sem eftir stendur eru rústir einar.

Þessi verk eru fórnargjafir úr rústunum. 

Ágrip

Dýrfinna Benita Basalan (f. 1992) er myndlistarkona fædd og uppalin á Íslandi, með filippseyskar rætur. Hún lauk BA-námi í myndlist og hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2018. Síðan hefur hún starfað sjálfstætt á sviði myndlistar, auk þess að vera hluti af listahópnum Lucky 3, sem hún stofnaði árið 2019 ásamt Melanie Ubaldo og Darren Mark.

Árið 2022 hlaut hópurinn Hvatningarverðlaunin fyrir gjörninginn PUTI, sem var frumsýndur á Sequences 2021 í OPEN. Dýrfinna hefur sýnt verk sín bæði á Íslandi og erlendis og vinnur í fjölbreyttum miðlum, þar á meðal blýantsteikningu, innsetningum og stálskúlptúrum.

Verk hennar fjalla um táknkerfi og samfélagslega uppbyggingu á tímum post-kapítalisma, þar sem gildi eins og tími, viska og náttúruauðlindir eiga það til að glatast. Hún sækir innblástur í eigin reynsluheim og tengsl við umhverfið, sem vekja gjarnan upp flóknar og tvíræðar tilfinningar.

Dýrfinna er einnig virk í tónlistarsenunni og þekkt undir nafninu Countess Malaise.

Melanie Ubaldo (f. 1992 í Fillipseyjum) er íslensk myndlistarkona, búsett í Reykjavík. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Melanie hefur tekið þátt í ýmsum sýningum hérlendis og erlendis. Hún hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn árið 2021 og er jafnframt stofnandi listamannaþríeykisins Lucky 3 sem hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2022. Verkin hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, öðrum opinberum stofnunum og í einkaeigu.

Listamenn: Dýrfinna Benita Basalan, Melanie Ubaldo

Dagsetning:

16.08.2025 – 28.09.2025

Staðsetning:

Nýlistasafnið

Marshall House, Grandagarði 20, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningHjólastólaaðgengiEnginn aðgangseyrir

Opnunartímar:

Mið – sun: 12:00 – 18:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5