AI \ NI

Árni Valur Axfjörð, Anton Lyngdal

AI \ NI fyrirbæri

Sýningin AI \ NI eftir Árna Val Axfjörð og Anton Lyngdal er unnin út frá hugmyndum listamannanna á þróun gervigreindar og áhrifum hennar á listsköpun mannsins. Gervigreind er forrituð, hún lærir og tekur sjálfstæðar ákvarðanir. Hún lærir hratt og skilar afurð sinni hratt frá sér. Hún skapar nýjar útgáfur. Hún getur reiknað út tilfinningar út frá svipbrigðum. Hún þjónar okkur vel. Talað er um að hún verði mennsk og öðlist sjálfsvitund. Gervigreind er forrituð, hún byggist á þeim upplýsingum sem maðurinn matar hana með. Hún vinnur alltaf út frá orðum og gjörðum mannsins. Hún fylgir fyrirfram ákveðnu formi. Hún finnur ekki tilfinningar, hún finnur ekki sársauka, í hana vantar alltaf neistann, sálina. Gervigreindin er ekki upprunaleg, hún er takmörkuð. Maðurinn hefur verkvit og hugvit. Hann finnur til og hefur tilfinningagreind. Maðurinn skapar fallega hluti án utanaðkomandi aðstoðar, hann skapar á sínum hraða. Ekkert getur komið í staðinn fyrir sál og neista listamannsins, listamaðurinn er ekki takmarkaður, maðurinn er ekki takmarkaður.  Náttúran, sem er uppspretta alls lífs er nauðsynleg, gervigreindin er ekki uppspretta lífs, hún er er byggð á því sem náttúran hefur nú þegar skapað. Sýningin opnar í Fyrirbæri við Ægisgötu 7, laugardaginn 11.maí kl. 15:00-20:00 -----

Listamenn: Árni Valur Axfjörð, Anton Lyngdal

Dagsetning:

11.05.2024 – 09.06.2024

Staðsetning:

Fyrirbæri

Ægisgata 7, 101 Reykjavík, Iceland

Merki:

MiðborginSýningEnginn aðgangseyrirHjólastólaaðgengi

Opnunartímar:

Lau: 13:00 – 16:00 

Fimmtudagurinn langi opið kl. 18:00 – 21:00

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Perpetual Motion
Um okkur