Opið fyrir umsóknir í myndlistarsjóð - haust 2025

03.06.2025

Myndlistarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir fyrir haustúthlutun árið 2025. Umsóknarfrestur er til kl. 16 mánudaginn 18. ágúst. 

Hlutverk myndlistarsjóðs er að veita styrki til undirbúnings verkefna og til að auðvelda framkvæmd verkefna á sviði listsköpunar og rannsókna á myndlist. Styrkir eru veittir til myndlistarfólks, sýningarstjóra, listfræðinga og sjálfstætt starfandi fagfólks á sviði myndlistar. 

Til úthlutunar eru 26 milljónir og tilkynnt verður um niðurstöðu í lok september.

Umsækjendum býst ráðgjöf fyrir umsóknagerð, bæði verður upp á kynning á sjóðnum fyrir nýliða og fjarvinnustofur. Sjá nánar hér.

Nánar um sjóðinn

Myndlistarsjóður veitir þrjár tegundir styrkja:

  • Undirbúningsstyrkir
  • Sýningastyrkir
  • Útgáfu-, rannsóknar- og aðrir styrkir

Eftirfarandi verkefni hafa forgang samkvæmt úthlutunarstefnu:

  • verkefni sem efla alþjóðlegt samstarf og kynningu á íslenskri myndlist erlendis.
  • fjölbreytt verkefni á sviði myndlistar, m.a. með tilliti til sjálfbærni og menningarlegrar fjölbreytni.
  • verkefni sem unnin eru í tengslum við myndlistarhátíðir og vinnustofur hérlendis og erlendis.
  • verkefni sem byggja á samstarfi um rannsóknir og útgáfu rita og bóka um myndlist.
  • verkefni sem styðja við framkvæmd myndlistarstefnu og þær aðgerðir sem falla undir starfssvið myndlistarráðs.

Í þeim tilvikum sem sótt er um styrk vegna sýningaraða eða samsýninga eru skipuleggjendur hvattir til þess að senda inn eina umsókn fyrir verkefninu í heild, í stað umsókna frá einstökum sýnendum. Ef þátttakendur velja að senda inn umsóknir fyrir sínu framlagi, þá er mælst til þess að ekki sé send inn umsókn vegna verkefnisins í heild.

Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, er nauðsynlegt að skila inn greinargerð vegna þess verkefnis til þess að ný umsókn verði tekin til umfjöllunar.

Styrkupphæðir og styrkhæfur kostnaður

Lágmarksupphæð styrkja er 300.000 kr. og hámarksupphæð er 3.000.000 kr. 

Myndlistarsjóður styrkir allt að 70% af áætluðum heildarkostnaði verkefna.

Vinsamlega athugið að myndlistarsjóður styrkir vinnu sérfræðinga, laun tæknimanna, efniskostnað, tækjakostnað, vef- og fjölmiðlakynningu, skráningu og ljósmyndatöku, hönnun og umbrot, prentkostnað og annað sem tengist verkefninu. Sjóðurinn styrkir ekki ferðalög, þóknun til listamanna, rekstur vinnustofu eða veitingar í tengslum við viðburði.

Umsóknareyðublað

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Vistaðar eða innsendar umsóknir eru aðgengilegar hér:

Sýniseintak af umsóknarforminu má skoða hér

Í umsókn er beðið um eftirfarandi:

·      upplýsingar um umsækjanda og þátttakendur

·      ferilskrá

·      mynd sem má nota í kynningartilgangi

·      verkefnalýsingu

·      verkáætlun

·      kostnaðaráætlun og fjármögnun verkefnis

Umsóknir skulu vera á íslensku sé þess kostur, en annars má finna umsóknarform á ensku.

Gagnlegir hlekkir

Vefur myndlistarsjóðs: www.myndlistarsjodur.is

Reglur myndlistarsjóðs: https://island.is/reglugerdir/nr/0552-2014

Úthlutunarstefna myndlistarsjóðs 2022-2025

Myndlistarlög: https://www.althingi.is/lagas/152c/2012064.html

Hafa samband

Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is

Fylgið okkur á Facebook og Instagram

Dozie, Precious
Hildigunnur BIRGISDÓTTIR, Approx. 7% (2024), Icelandic Pavilion
ÍMV 2024 handhafar Ljósmynd: Sunday & White
Austurstræti 5